Ađalvalmynd

Könnun

Steindór ćtti ađ hćtta...

Auglýsing

Gagnasafn

Tímavél

steindi.BLOGSPOT.COMSteindór Dan Jensen

Ţađ tilkynnist hér međ ađ ég mun, frá áramótum, blogga á öđru bloggsvćđi, steindi.blogspot.com. Ţessi ákvörđun mun hafa umtalsverđ áhrif á netumferđ u.ţ.b. ţriggja einstaklinga. Ađrir munu ekki verđa fyrir óţćgindum vegna málsins.... Nánar

HoldgervingurinnSteindór Dan Jensen

Ég setti saman ljótt ljóđ fyrir skemmstu, sem heitir Holdgervingurinn. Núna er í gangi myndasamkeppni á hugi.is/myndlist um myndskreytingu ţess og verđur spennandi ađ sjá hvađ kemur út úr ţví. Ef einhver af ţessum 3 sem lesa bloggiđ mitt kann ađ teikna vćri gaman ef sá tćki ţátt. Ljóđiđ er annars svona:... Nánar

Fórnarlamb ritstuldarSteindór Dan Jensen

Fimmtán ára unglingur, sem kallar sig Baldur Ţór Sigurđarson, hefur framiđ rán. Og ţađ sem meira er - hann hefur rćnt mig! Ţrjú ljóđ, sem ég lagđi blóđ mitt og svita, ađ ógleymdum tárum, í ađ semja birtust óvćnt, undir hans nafni, á huga.is í dag.... Nánar

Hálfur milljarđur í súginnSteindór Dan Jensen

Ég tapađi hálfum milljarđi - 500 milljónum - króna sl. miđvikudag. Ţetta gerđist svona um fjögurleytiđ, ţegar ég gleymdi ađ kaupa miđa í Víkingalottó. Ótrúlega leiđinlegt.... Nánar

Gullbrúđkaup ömmu og afa og ljod.is/steindorSteindór Dan Jensen

Nú er megnið af þeim lleirburði sem ég hef látið frá mér aðgengilegur undir slóðinni ljod.is/steindor. Ánægjulegt.

Amma mín og afi (amma Dagný og afi Árnason) náðu þeim merka áfanga 13. september sl. að hafa verið gift í hálfa öld - gullbrúðkaup og ekkert minna. Þau fögnuðu áfanganum á Mallorca ásamt hinu ömmu og afa parinu mínu, ömmu Þórunni og opa Manfred.

Ef þetta er ekki tilefni til yrkingar kvæðis veit ég ekki hvað.

Sá atburður gerðist eitt sinn úti í sveit
að sjómaður ylhýra stúlkukind leit,
og hjartað hans hamaðist senn.
Hann byrjaði snemma að dömunni að dást
og dálítil kviknaði í brjósti hans ást,
sem líklega leynist þar enn.

Hann elti hana á röndum og reyndi að ná
að ræna hennar athygli símanum frá -
það svolítið seinlega gekk.
En loks varð það úr að þau mæltu sér mót,
maðurinn ungi og hin ylhýra snót -
hann ósk sína uppfyllta fékk.

Þau áttu vel saman og sungu þann brag
sem sunginn er ennþá í Kjósinni í dag
og ómar um byggðir og ból.
Nú gerum við veislu þeim hjónum í hag
því hálf öld er síðan þeim kirkjunnar lag
skenkti sitt giftingarskjól.

Nú þökkum við ykkur
með þýðlyndum yl
að þess fáum notið
að þið séuð til.


Innilega til hamingju amma og afi!

Hjólabrettavillingurinn ÓlafurSteindór Dan Jensen

Mér fannst kominn tími til að semja ljóð um hjólabrettavillinga.

I

Þótt fáir kunni að efast um
að Ólafur sé villingur
verður svo að heita að hann
sé hjólabrettasnillingur.
Oft og tíðum geysist greitt
um götur, torg og strætið breitt
Öruggur í alla staði
óttast varla neitt.

Hann þeytist oft um Ingólfstorg
og eltir hina krakkana.
Það ergir margan útlendinginn,
aðallega Frakkana.
Þeir bölva Óla í ösku og sand
og atvik þessi festa á band
og segjast koma aldrei aftur
inn í þetta land.

En Ólafi er alveg sama
um asnalega fúlista
og ekki minnstan gefur gaum
að gelgjustælum túrista.
Heldur áfram ótrauður,
Agalega sérvitur!
Þokkalega þrjóskur er hann,
þessi Ólafur.

Á Ingólfstorgið Óli mætir
oftast snemma á morgnana
Eltist síðan allan daginn
inn á milli hornanna.
Gjarnan tekur gleðin völd -
hann gæti skeitað heila öld!
Alla daga, allar nætur,
en einkum sumarkvöld.

En hjólabrettafárið finnst jú
fáum vera merkilegt.
Því má vera að þessu fólki
þyki svolítið ergilegt
að eiga bara Ingólfstorg,
og aðeins það, í stórri borg!
Griðastaði enga aðra,
en sú mikla sorg.

Eitt er víst, að Óli og co.
ætla sér að rísa upp,
er hittust eina helgina
stóð hjólabrettaskvísa upp.
Hnefanum hún barði í borð,
bálreið mælti hatrömm orð,
og sagðist mundu, ef ekkert yrði
að gert, fremja morð!

Undir sig þau ætla að leggja
alls kyns merkar byggingar
og til að safna saman fé
þau selja falskar tryggingar.
Láta illum látum, öll,
líkt og skrímsli og feiknartröll.
Hyggjast breyta borginni
í brettagæjahöll.


II

En ekki gekk sú áætlunin
upp, og segir kenningin
að hún sé orðin heldur fátæk,
hjólabrettamenningin.
- Við verðum að finna vænna ráð,
ef vorum markmiðum skal náð!
Nú verður okkar allra bestu
eðalfræjum sáð.

Svo hittust þau og héldu fund
því hugmynd nýja vantaði
og ekki leið á löngu þar til
Lárus orðið pantaði.
- Ég fékk hugmynd! Hlýðið á,
við herja skulum innan frá.
Reynum Óla, eins og hægt er,
inn á þing að ná!

Út þá brutust erjur miklar,
svo úr varð lítill tryllingur.
Því hugmyndin fannst ýmsum ágæt
en öðrum tómur hryllingur.
Þá krónupening karl einn fann,
svo kastað var upp á sannleikann.
Krónan lenti og það var þorskur -
þinghugmyndin vann.


III

Eitt sinn var Óla stöðugt strítt
og stundum nefndur "Óli tík".
Við er tekin öldin önnur -
Óli fæst við pólitík.
Inn í Sjálfstæðisflokkinn fékk,
frækinn til liðs við Dabba gekk!
En flokkur þessi féll þó ekki
fullvel að hans smekk.

Þar þoldi hann ekki ýmsa menn
sem einkum dáðu sjálfsmyndir.
Nýr við Óla nú tók flokkur;
nefnilega Frjálslyndir.
Gekk þar Óli glaður inn.
- Gæfan, hún er vinur minn!
Hér mér eins og heima líður,
hér ég verð um sinn.

En ekki komst hann inn á þing
og er það mikið sorgarmál,
en Óli datt þó ekki af baki
og einblíndi á borgarmál.
Þar reið hann ekki á ragan garð,
reyndar nýtti hann sér skarð
sem borgina hafði bjagað lengi
og borgarstjóri varð.

Óla gremst sú ræfilsraun
að Reykjavík sé gettóborg
og ekki gekk það gæfulega
að gera hana að brettaborg.
Til þrautar hefur hann það reynt
af heilum vilja, ljóst og leynt.
Þótt árangur sé ansi dapur
er það betur meint.

Hann reyndi að láta Reykvíkinga
renna brettahjólunum
eins að sumri og að vetri,
ekki síst á jólunum.
En ekki tókst það, en sú sorg,
sem angrar Reykjavíkurborg.
Má svo heyra að menn sér ætli
að minnka Ingólfstorg!

Því má segja það með sanni
að þrátt fyrir alla fórnina
kveðji Óli klökkur, svekktur
kalda borgarstjórnina.
Heldur vann hann verðlaust starf,
varla um það efast þarf.

Úr borgarstjórastóli svekktur
strákur, Óli, hvarf.

Hiđ ljúfa sumarSteindór Dan Jensen

Jæja þá er sumarið hér um bil hálfnað. Ég vinn í álverinu á Grundartanga, Hvalfirði. Sú vinna hefur rænt mig lífsviljanum. Guðni, þú áttir að vara mig betur við!

Þessi vinna hefur þann eina kost að frídagar sumarsins eru vel fleiri en annars staðar. Fríin hef ég nýtt vel til golfiðkunar og ferðalaga. Um síðastliðna helgi fórum við Halla t.a.m. upp í Kjós í bústaðinn til ömmu og afa og eyddum þar einni nótt. Við tjölduðum líkkistutjaldinu hans pabba úti í garði og hugðumst gista þar en til öryggist bjó amma um okkur inni í svefnsófa, enda í kaldara lagi úti (eða skíta djöfulsins kuldi eins og afi orðaði það). Þegar við lögðumst inn í tjald skömmu eftir miðnættið hafði það staðið opið í fáeina klukkutíma og Halla var fullviss um að það væri stútfullt af kóngulóm. Klukkan 3.15 um nóttina hrökk ég svo upp við það að stór og loðin rotta beit mig í beran hælinn. Þá ákváðum við Halla að færa okkur inn í bústað og gistum svefnsófann það sem eftir lifði nætur.

Sólin okkur sendir ljós
sest á þakið rita
Inni í bústað uppi í Kjós
í átta gráðu hita

Þessi vísa var ort til að láta vini og vandamenn vita af skíta djöfulsins kuldanum sem hrjáði okkur. Engin var þó ritan sjáanleg, en amma og afi sögðu alls ekki ólíklegt að einhvern tímann kunni rita að hafa sest á þak í Kjósinni.

Í dag er lokadagur fimm daga frívaktar. Á morgun liggur leið mín upp á Grundartanga á ný :(

Er Goggi ennţá ađ lesa?Steindór Dan Jensen

Vegna stríðni minnar í garð Gogga á blogginu hans þann 27. mars sl. grunar mig að hann sé, í mótmælaskyni við mína persónu, hættur að sækja bloggið mitt.

Ég þigg með þökkum alla aðstoð við sannreynslu eða afsönnun þessarar kenningar.

Leikskólabörn syngja um ástinaSteindór Dan Jensen

Einu sinni sem oftar heimsótti ég leikskólann Hagaborg á dögunum. Þar er oft dátt sungið og þykir mikið gaman. T.a.m. sungu krakkarnir Kvæðið um fuglana eftir Davíð Stef. (Snert hörpu mína..) fyrir mig um daginn af mikilli prýði.

En lögin sem leikskólakrakkar nú til dags syngja eru ekki öll jafnklassísk og Kvæðið um fuglana - onei. Þegar ég sat að snæðingi á Hagaborg fyrir skemmstu heyrði ég mér nefnilega til mikillar furðu ljóðínuna "ÞÚ! Finnur að ástin er... International!" eftir PÓ sungna af mikilli innlifun margra barna í kór. Ég leit furðu lostinn á móður mína, sem sagði leikskólann enga ábyrgð á þessu bera - krakkarnir lærðu þetta heima hjá sér. Svona breytast tímarnir og krakkarnir með!
---

Um daginn gerði ég svofellda tilraun til að binda leikfimitíma í MR í orð:

Við hlupum um á ísilagðri tjörn.
Í andstæðingsins mark var reynt að skora,
síðan snerum sókn í harða vörn.
Og sæl við hlupum um þá tók að vora
líkt og værum aftur orðin börn
sem allt hvað þykjast geta, vilja og þora.

En þeir sem æ af útihlaupum misstu
urðu að dúsa í skítugri þrælakistu.

Ljóđ um kindSteindór Dan Jensen

Eftirfarandi þankagangur átti sér stað í huga mér fyrir stuttu: Hey, væri ekki gaman að semja ljóð um kind? Jú, prófum það!
Afrakstur tilraunarinnar er þessi kindarlega vísa:

Úti ómar vindur,
eitlar vetrar mein.
Inn eru hverjar kindur
komnar - nema ein.

Sú beit gras í sumar
en sást svo aldrei meir.
Hátt nú himinn þrumar,
hrímköld kind brátt deyr.

Beinin hennar braka,
blóðið frjósa nær.
Kyngir niður klaka,
króknar gömul ær.

Fimbulkuldi, frostið
færist yfir allt.
Liðið liggur brostið
líkið, jökulkalt.

Aldrei mun hún aftur
eitt né nokkuð sjá.
Kuldans feiknarkraftur
kæfði týnda á.
Síđa 1 af 3

Prófíll

Önnur ritl